
Rannsóknir
Helstu rannsóknir og greiningar sem framkvæmdar eru á Læknasetrinu.
Við bjóðum upp á allar helstu rannsóknir innan lyflækninga — hjartalækninga, gigt-, lungna-, meltingar-, nýrna-, ofnæmis-, tauga-, innkirtla-, blóð- og krabbameinslækninga.
Hjartalínurit og blóðþrýstingsmæling
Grunnrannsóknir sem meta hjartslátt, takt og blóðþrýsting. Notaðar til að greina hjartasjúkdóma og fylgjast með hjartaheilsu.
Sólarhrings-blóðþrýstingsmæling
24 klukkustunda mæling sem fylgist með blóðþrýstingi yfir dag og nótt við venjulegar aðstæður.
Holter – langtímaupptaka á hjartariti
Langtímaupptaka á hjartariti í 24–48 klukkustundir sem hjálpar til við að greina hjartsláttartruflanir og óreglulegan hjartslátt.
Hjartaómskoðun
Ómskoðun sem sýnir uppbyggingu og starfsemi hjartans með öruggri og verkjalausri myndgreiningu.
Áreynslupróf
Álagspróf á hjóli eða bretti þar sem fylgst er með hjartslætti, blóðþrýstingi og einkennum við áreynslu.
Svefnrannsókn
Svefnrannsókn sem framkvæmd er heima með mælitæki til að meta kæfisvefn og aðrar svefntruflanir.
Lungnarannsókn – spirometria
Mæling á lungnastarfsemi og loftrásarþrengingum, mikilvæg við greiningu astma og langvinnrar lungnateppu.
FeNO-mæling
Mæling á bólgu í loftvegum sem nýtist sérstaklega við greiningu og eftirlit með astma.
Ofnæmispróf
Húðpróf og blóðpróf til greiningar á algengum ofnæmisvökum.
Blóðrannsóknir
Framkvæmdar í samstarfi við Rannsóknarsetrið í Mjódd (RAM) og veita mikilvægar upplýsingar um heilsufar og greiningu sjúkdóma.
Röntgenrannsóknir
Framkvæmdar í samstarfi við Röntgen Domus og nýtast við greiningu á stoðkerfi, lungum og öðrum líffærum.
