Læknasetrið merkiLæknasetrið
Hjúkrunarmóttaka Læknasetursins

Vökvagjafir

Vökvagjöf í æð til að bæta vökva- og saltjafnvægi líkamans.

Til baka á Hjúkrunarmóttökuna

Vökvagjöf í æð (IV vökvi)

Vökvagjöf í æð er meðferð þar sem vökvi og sölt eru gefin beint í blóðrásina. Hún getur verið góður kostur þegar erfitt er að halda góðu vökvajafnvægi eða þegar líkaminn þarfnast aðeins meiri stuðnings en hægt er að fá með því að drekka vökva.

Í Læknasetrinu bjóðum við upp á vökvagjöf með Ringer Acetat. Margir með POTS, Long Covid, ME/CFS og aðrar sambærilegar greiningar, upplifa að meðferðin geti dregið úr einkennum og hjálpað þeim að eiga auðveldara með dagleg verkefni. Áhrifin eru þó mismunandi eftir einstaklingum og því er mikilvægt að finna það sem hentar hverjum og einum.

Hvernig fer meðferðin fram?

Meðferðin fer fram í rólegu og notalegu umhverfi undir eftirliti hjúkrunarfræðings. Þú sest í þægilegan hvíldarstól og getur slakað á á meðan vökvinn rennur inn. Við eigum líka púða og teppi fyrir þá sem vilja hafa það extra notalegt.

Hversu mikið magn fæ ég?

Við gefum ýmist:

  • 1 lítra
  • 1,5 lítra
  • 2 lítra

Hvað hentar best er einstaklingsbundið. Flestir byrja á 1 eða 1,5 lítra og sjá hvernig þeim líður, en síðan er hægt að auka magnið ef þörf er á. Verðið er það sama, óháð því hvort þú færð 1, 1,5 eða 2 lítra.

Hvað tekur meðferðin langan tíma?

Yfirleitt tekur um eina klukkustund að gefa 1 lítra af vökva, en það getur verið mismunandi eftir einstaklingum og óskum hvers og eins. Við leggjum áherslu á að meðferðin fari fram á þægilegum hraða svo þér líði sem best.

Tilvísun frá lækni

Ef þú ert með sjúkdóm eða einkenni sem vökvagjöf í æð gæti hjálpað við, þarftu fyrst að ræða það við þinn lækni. Til að fá meðferðina hjá okkur þarf tilvísun frá lækni, þar sem metið er hvort hún henti þér og þínum aðstæðum.

Bóka tíma

Tímapantanir fara fram í gegnum móttöku Læknasetursins í síma 535 7700 eða í tölvupósti á setrid@setrid.is.

Hafa samband